3 feet high and rising
þriðjudagur, ágúst 26, 2008
  pabbablogg. Aðfararnótt sunnudagsins síðasta fæddist mér dóttir. Ég ætla svosum ekki að vera eyða dýrmætum tíma í bloggið en vísa á síðuna okkar Þórdísar og hennar sem er hér

http://barnanet.is/bingobongo er síðan líka hægt ef þessi ofursvali linkur virkar ekki.

Lykilorðið getið þið fengið með að hringja í mig, senda mér sms eða email á heimirbjejod@gmail.com ef þið viljið kíkja á hana.

Pís át 
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
  Pólítíkusar... Mér verður óglatt af því að sjá þetta borgarstjórnarpakk. Þvílíkt ógeð af fólki og ræflar. Þetta er orðin ein stór orgía af transsexúölum sleikjandi rassgötin á hvoru öðru. Tvítóla með kynsjúkdóm á allri hersingunni.
Ógeð. 
þriðjudagur, júlí 22, 2008
  Hér sit ég og sötra einn tígur: Og nenni í fyrsta skipti að blogga í dágóðan tíma. Ég hef loksins eitthvað sem ég vil segja internetinu...

Mikið ofboðslega finnst mér nýja lagið með hjaltalín óþolandi.
Þessi annars stórefnilega hljómsveit.

Hins vegar í skemmtilegri fréttum þá fórum ég og hún Þórdís aka t-fribb í þrívíddarsónar í dag og sáum stúlkukindina okkar í fyrsta skipti svona "almennilega". Það var frekar fríkí ef svo má að orði komast en ótrúlega skemmtilegt. Hún sýndi reyndar aðallega á sér eina hlið sem var þrjóska og gerði allt sem í hennar valdi stóð til að fela sig. En það náðist þó ein eða tvær góðar myndir af henni sem má sjá á:
http://www.bingobongo.bloggar.is
öntill næst

hjessi bjé 
fimmtudagur, maí 08, 2008
  Er það virkilega? Ég hef verið að velta fyrir mér hvort að Ólafur F. sé bara svona ofboðslega mikill klaufi eða blátt áfram heimskur síðustu daga.
Það virðist eins og ekkert sem hann segi eða geri hafi nokkuð að gera með það sem hann hefur áður sagt eða gert.
En þegar ég pæli í þessu þá velti ég því fyrir mér hvort að þetta eigi ekki við alla pólitíkusa almennt? Hann er bara svo ofboðslegur klaufi að hann lætur nappa sig í vitleysunni endalaust.
En svo gæti líka bara verið að hann sé einn af þessum nautheimsku pólitíkusum sem virðast bara ekkert hafa til brunns að bera nema andlit og frasa. Svo er það alltaf þannig að þeir bara lentu í pólitíkinni dálítið svipað og rónar og dópistar á götunni. Þó þeir hafi alltaf ætlað sér að klára skólann og vinna meðal hins rómaða almennings. Sem þeir og þær gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa. Og sem núna reyndar sýpur seiðið af því að 6 þúsund og eitthvað kusu Ólaf F. inní borgarstjórn. Enn fleiri kusu Villa og fæstir skiluðu auðu eins og við hefðum öll átt að gera.

Hversu marga aula ætli við séum með í stjórnunarstöðum á Íslandi?
Líklega miklu fleiri en heilbrigða, sanngjarna aula með samvisku. En þá held ég að sé ekki hægt að fá á Íslandi. Allavega er það mjög erfitt.

Af öllum vandamálum sem við glímum við held ég að við, Íslenska þjóðin, séum hið stærsta og versta.
Við kjósum eins og við keyrum, við drekkum eins og við keyrum, við drekkum og keyrum, einhverjir líklega drekka, keyra og kjósa á sama tíma. Við vinnum jafn mikið og við hugsum lítið, við gleymum jafn hratt og við verðum fljótt uppveðruð og reið. Við erum jafnléleg að mótmæla og í íþróttum en höldum samt alltaf að við séum best.
Við, Íslendingar erum háklassa fábjánar með egó á við Bubba og þankaganginn i takt.
Reyndar held ég að allt það sem ég sé slæmt í Íslensku samfélagi geti ég fundið í sögu, og persónu Bubba.

Paus át.

Hjeimir Björnsson og Sterling. 
miðvikudagur, apríl 30, 2008
  bladdáww Ég hef einhverja skemmtilega þörf fyrir wu tang þessa daganna.
Ekki við það að kvarta.
Annars langaði mig ekki að blogga nema bara til þess að koma þessu að.
Ég tek það sérstaklega fram að það er fullorðinn maður sem segir þetta um annann fullorðinn mann!

Drogba var spurður út í ummæli Benitez.

"Það er mjög erfitt að fá svona ummæli um sig, sérstaklega þar sem Benitez er frábær þjálfari, en ætli hann hafi ekki verið vonsvikinn með sitt lið og er með minnimáttarkennd yfir að okkar lið sé betra"


Ég veit ekki hvað það er við þetta um minnimáttarkenndina en ég bara get ekki einu sinni hlegið þetta er eitthvað svo yfirmáta "égveitekkihvaðaorðerhægtaðsetjaþarnainn"

Paus.

Hjessi 
fimmtudagur, apríl 10, 2008
  jæja andskotinn þetta er fjandans helvítis ha? Þar sem að ég þetta er ekki moggablogg þá er þetta blogg eiginlega bloggheima undirheimablogg. Ég daðraði við moggaablogg en ég einhvernveginn kunni ekki við þetta aðgengi allt frá öllum. Ég hélt mér ætti eftir að finnast gaman að rífast við fólk á netinu en ég var iðulega búinn að rífa þetta út aftur eftir smá, til þess einmitt að þetta sama fólk gæti ekki kommentað hjá mér.
Ég kann ágætlega við þetta blogg. Ég kann ekki á það í raun og veru. Ég kann bara að gera nýtt blogg, að edita gömul, og eyða út. Ég kann ekki að gera linka og ekki neitt. Ég kann ekki einu sinni að muna eftir því að blogga reglulega.
Akkúrat núna nennti ég að blogga og kann ágætlega við það.
Um daginn uppgötvaði ég að ef að ég fengi að gera skjetsaþátt myndi hann aðallega vera um prump og kúk og eftir að hafa fullmótað og ímyndað mér tvö slík atriði hló ég upphátt að þessu og fór síðan að sofa.
Eftir smástund er það síðan routine check hjá the mother of light eða ljósmóður.
Fullorðinsárin sigla til mín hraðbyri. Fljótlega blogga ég bara inná barnaland og tala ekki við neinn sem hefur ekki skipt um bleiu eða fellur undir það þroskastig sem ég tel boðlegt mínu eigin.
Þangað til er eins gott einhver haldi kjafti eða ég óna hann shitface mikið. 
mánudagur, nóvember 19, 2007
  skaphári.com Ef að þessir krakkar sem eru með skapari.com verða einhverntiman fullorðnir heimskir rasistar þá ætla ég að vona að kio briggs verði í fangelsi hérna á íslandi á sama tíma og þeir fara inn og hann láti þá toss his salad with jelly or syrup.
Pís 
Ekki diskó ekki vanilla heldur tutti frutti twist...

Ljósmyndin mín
Name: Heimir Björnsson
Location: Iceland
Archives
febrúar 2005 / mars 2005 / apríl 2005 / maí 2005 / júní 2005 / júlí 2005 / ágúst 2005 / september 2005 / október 2005 / nóvember 2005 / desember 2005 / janúar 2006 / febrúar 2006 / mars 2006 / apríl 2006 / maí 2006 / júní 2006 / ágúst 2006 / október 2006 / nóvember 2006 / desember 2006 / janúar 2007 / febrúar 2007 / mars 2007 / apríl 2007 / maí 2007 / júní 2007 / júlí 2007 / október 2007 / nóvember 2007 / apríl 2008 / maí 2008 / júlí 2008 / ágúst 2008 /


Powered by Blogger

Subscribe to
Posts [Atom]